Quantcast
Channel: akureyrivikublad.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 1718

Bleikjan lifir af sleppingar

$
0
0
Erlendur Steinar

Erlendur Steinar

Erlendur Steinar Friðriksson heldur meistaravörn sína í gær, föstudag, í fyrirlestrarsal Háskólans á Akureyri. Verkefni Erlends Steinar nær til meistaragráðu í auðlindafræðum og nefnist Veiða og sleppa sem veiðistjórnun á bleikju í Eyjafjarðará.

Verkefni Erlends Steinar var var unnið við Háskólann á Akureyri, í samstarfi við Veiðimálastofnun og Veiðifélag Eyjafjarðarár. Í útdrætti meistararitgerðarinnar segir Erlendur: „Bleikjustofnum heimsins fer fækkandi og stofnstærðir minnka, á sama tíma eykst til muna sókn í stangveiðar. Skýrt dæmi er bleikjustofninn í Eyjafjarðará, þar sem að sókn jókst jafnt og þétt til ársins 2001 eða þar til algert hrun varð í stofninum. Hverjar sem ástæður fækkunar bleikju eru, má segja að skynsamlegt sé að bregðast við með veiðistjórnun er miðar að sjálfbærni. Markmið veiða og sleppa sem veiðistjórnunaraðferðar er minnka afföll vegna veiða með því að sleppa veiddum fiski aftur lifandi. Aðferðinni hefur verið beitt til margra ára með ágætis árangri í ýmsum tegundum sportfiskjar, m.a. í laxi og urriða.“

Lítt hefur fram til þessa verið hugað að veiðistjórnun á bleikju. Rannsóknin var þannig framkvæmd að fiskur var fangaður og merktur, sleppt og fylgst með endurheimtum. Til samanburðar voru nokkrar aðrar ár, stangveiddur lax og urriði, og fiskur fangaður með neti í Eyjafjarðará. Margir stangveiðimenn komu að merkingunum og var þess ekki krafist að þeir beittu sérstökum varúðarráðstöfunum við að veiða og sleppa. Einnig var bleikja fönguð, merkt, geymd í búri í tvo daga og afföll mæld. Niðurstöður voru þær að lítill munur var á endurheimtum á bleikju í Eyjafjarðará, hvort heldur sem hún var fönguð og merkt á stöng eða í net. Ekki var mælanlegur munur á endurheimtum á bleikju í Eyjafjarðará eftir stærð fiskjar við merkingu, tíma sumars eða veiðimanni. Engin afföll mældust á bleikju fyrstu 48 stundirnar eftir föngun og merkingu.

Niðurstaða mín og allra annarra rannsókna á sviði „veiðaogsleppa“ er að fiskurinn lifi í flestum tilvikum. Að því gefnu að rétt sé staðið að sleppingum,“ segir Erlendur í samtali við Akureyri vikublað.

Mörgum þyki þetta þó framandi að sögn Erlends, að veiðimenn borgi fyrir að fá að veiða fisk til þess eins að sleppa honum aftur, en stangveiðimenning, líkt og önnur menning sé margbreytileg.

„Að veiða og sleppa er nær okkur en ætla mætti við fyrstu sýn. Börn sem fanga fiðrildi, hunangsflugur eða köngulær dást að, skoða og sleppa svo. Að ganga um kríuvarp á áreyrum eða á melum í leit að ungum, elta þá uppi, fanga, rannsaka, dást að og sleppa svo er eitthvað sem flestir kannast við. Þetta eru fyrstu kynni fólks af því að fanga og sleppa. Aðferðin í stangveiði snýst stundum ekki um annað en að fanga lífveru, dást að henni og sleppa svo. Þegar fiskinum er sleppt er venjulega gert ráð fyrir því að fiskurinn lifi það af að vera sleppt og geti jafnvel verið veiddur aftur síðar. Þannig er það að í sumum tegundum stangveiða er þessi aðferð stundað af veiðimönnum af fúsum og frjálsum vilja. Allt að 100% af fiskinum sleppt og hátt í 100% lifir,“ segir Erlendur.
Niðurstöðurnar voru stuttu málið þær að endurheimtur á bleikju í Eyjafjarðará voru í kringum 10%, og afföll vegna V&S á fyrstu 48 stundum eftir sleppingu mældust engin. Náttúruleg afföll á milli ára voru metin um 50% og er því ljóst að sögn rannsakandans að veiðiafföll geta haft mikil áhrif á stofnstærð.
-BÞ


Viewing all articles
Browse latest Browse all 1718