Í tilefni Akureyrarvöku hafa ÁLFkonur sett upp ljósmyndasýningu í gluggum Sýslumannshússins við Ráðhústorg, Hafnarstræti 107 á Akureyri. Sýningin stendur bara um helgina og verður tekin niður í dag, sunnudaginn 1. september 2013.
Myndirnar sýna fjölbreytta flóru daglegra athafna og viðburða á Akureyri. Menningin er litrík og það kennir ýmissa grasa frá öllum árstímum, enda af nógu að taka þegar kemur að skemmtilegum uppákomum og mismunandi sjónarhornum.
Njótum samverunnar og guðum á glugga mannlífsins!
ÁLF-konur eru: Agnes Heiða Skúladóttir Berglind H. Helgadóttir Díana Bryndís Ester Guðbjörnsdóttir Freydís Heiðarsdóttir Guðrún Kristín Valgeirsdóttir Gunnlaug E. Friðriksdóttir Halla S. Gunnlaugsdóttir Helga H. Gunnlaugsdóttir Helga Haraldsdóttir Hrefna Harðardóttir Kristjana Agnarsdóttir Lilja Guðmundsdóttir Linda Ólafsdóttir Margrét Elfa Jónsdóttir.
-BÞ