Slökkviliðsstjórar Fjallabyggðar og Dalvíkurbyggðar hafa sent Vegagerðinni á Akureyri bréf þar sem þeir lýsa yfir miklum áhyggjum af skorti á búnaði í Múlagöngum til að tryggja aðkomu og stjórnun aðgerða á staðnum ef slökkvilið eða björgunarfólk þarf að koma fólki til aðstoðar inn í göngunum.
Bæjarráð Fjallabyggðar tekur undir ábendingarnar og telur nauðsynlegt að ráðist verði í úrbætur hið fyrsta. Þetta kemur fram í fundargerð bæjarráðs Fjallabyggðar frá því í dag en á fundinum var bæjarstjóra Fjallabyggðar falið að framsenda bréfið til þingmanna kjördæmisins með þeirri ósk að málið verði tekið fyrir hjá Samgöngunefnd Alþings með óskum um úrbætur hið fyrsta.