Á Facebook hefur gengið frásögn af atviki sem átti sér stað í fjölbýlishús að Borgarhlíð 7-9 á Akureyri í gær. Þar er sagt frá því að farið hafi verið inn í íbúð og meðal annars kveikt í á þremur stöðum, tappi settur í baðkar og látið renna og matvælum hent um allt eldhús.
Atvikið átti sér stað milli kl 10-11 í gærmorgun (þriðjudag) og hefur lögreglan á Akureyri lýst eftir vitnum sem gætu hafa orðið vör við mannaferðir á þessum stað og tíma og er fólk sem getur gefið einhverjar vísbendingar beðið um að hafa samband við lögregluna í síma 464-7700.
Um er að ræða íbúð á jarðhæð í vesturenda hússins en nágranni náði að slökkva eldinn áður en mikið tjón hlaust af en þó urðu nokkrar skemmdir af völdum elds og reyks.