- 10 gr fjallagrös (um 2 lúkur)
- vatn
- 375 gr heilhveiti
- 75 gr malað byggmjöl
- 100 gr hafragrjón
- 35 gr sólblómafræ
- 2 msk pálmasykur eða hrásykur
- 1 msk lyftiduft
- 1 tsk matarsódi
- 1 tsk salt
- 5 dl mjólk (eða annar vökvi)
Undirbúningur: 20 mínútur
Baksturstími: 60 mínútur
Byrjaðu á því að leggja fjallagrösin í bleyti í skál með köldu vatni svo fljóti vel yfir.
Blandaðu saman í stórri skál öllum þurrefnunum; heilhveiti, byggmjöli, hafragrjónum, sólblómafræjum, sykri, lyftidufti, matarsóda og salti. Hrærðu vel saman.
Smyrðu 2 lítil brauðform vel að innan.
Hitaðu nú ofninn í 190° undir og yfirhita, ekki nota blástur.
Helltu vatninu af fjallagrösunum og grófsaxaðu þau. Blandaðu út í þurrefnablönduna.
Blandaðu nú mjólkinni eða vökvanum saman við og hrærðu vel. Þú getur notað sojamjólk, möndlumjólk, haframjólk, súrmjólk, hreina jógúrt eða bara vatn ef þú vilt ekki nota mjólk.
Skiptu deiginu í formin og bakaðu neðarlega í ofninum í um eina klukkustund eða þar til prjónn kemur hreinn út þegar þú stingur í deigið.
Dásamlegt með smjöri og osti.
Helga Kvam
allskonar.is