Á morgun, miðvikudaginn 20. ágúst, verða haldir samstöðu- og styrktartónleikar fyrir íbúa Gaza svæðisins þar sem fram koma fjórar eyfirskar hljómsveitir; Mafama, Helgi og hljóðfæraleikararnir, Heflarnir og Á geigsgötum. Allur aðgangseyrir rennur beint til neyðaraðstoðar og uppbyggingar á Gaza í gegnum Félagið Ísland-Palestína enda gefa allir sem að tónleikunum koma vinnu sína.
Tónleikarnir hefjast kl. 21 á Græna hattinum en miðasala fer fram í Eymundsson og við innganginn. Miðaverð er 2.000 kr.
Stuðningsaðilar tónleikanna eru meðal annarra Græni hatturinn, N4 og Ásprent.