Þú getur notað hvaða kjúklingabita sem þú vilt í þessa uppskrift; leggi, læri, bringur – eða beinlaust kjöt.
Athugaðu að kjötið þarf að marinerast í sólarhring, marineringin dugar fyrir 12-18 bita. Þú þarft því að skipuleggja þetta sólarhring fram í tímann eða leggja í marineringu að morgni.
Skinnið verður stökkt og bragðmikið, þannig að leyfðu því að vera á kjúklingabitunum.
Chilikjúklingur
- 6 msk olía
- 1 tsk chiliflögur
- 5 tsk rauðvínsedik
- 3 hvítlauksrif, marin
- 1 tsk cumin, malað
- 1 tsk oregano, þurrkað
- 1 tsk salt
- 1 tsk svartur pipar, nýmalaður
- 12-18 kjúklingabitar
Undirbúningur: 10 mínútur
Marinering: 12-24 klst
Eldunartími: 30 -40 mínútur
Hrærðu saman í stórri skál öllu hráefninu fyrir marineringuna. Skerðu smá í gegnum skinnið á kjúklingabitunum og leggðu í marineringuna, nuddaði kryddblöndunni vel inn í kjötið og skinnið. Lokaðu skálinni, eða settu í plastpoka og settu í ísskáp. Láttu marinerast í amk 12 klst eða sólarhring.
Taktu bitana út úr ísskápnum hálftíma áður en þú ætlar að elda þá.
Þú getur eldað kjúklinginn í 180°C heitum ofni í eldföstu móti með smá olíu í 35 mínútur.
Þú getur líka valið að grilla hann á grillinu eða steikja á pönnu.
Helga Kvam
allskonar.is