Quantcast
Channel: akureyrivikublad.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 1718

Söngveisla í Glerárkirkju

$
0
0
Karlakór Akureyrar - Geysir

Karlakór Akureyrar – Geysir

Fjórir karlakórar sameina krafta sína á söngmóti í Glerárkirkju næstkomandi laugardag, kl. 17:00. Mótið ber yfirskriftina „Hæ-Tröllum“ og er þetta í fimmta sinn sem Karlakór Akureyrar-Geysir stefnir til Akureyrar karlakórum allsstaðar að af landinu.

„Hæ-Tröllum“ var fyrst haldið árið 2006 og hefur síðan verið haldið annað hvert ár. Þátttakendur að þessu sinni eru, auk Karlakórs Akureyrar-Geysis; Karlakór Dalvíkur, Karlakórinn Stefnir úr Mosfellsbæ og Karlakórinn Drífandi af Fljótsdalshéraði. Samtals koma þarna saman vel á annað hundrað söngmenn.

Á mótinu flytur hver kór sína dagskrá og syngur 4-5 lög. Síðan sameina kórarnir krafta sína og flytja nokkur stórvirki úr sögu íslensks karlakórasöngs. Þarna gefst því kærkomið tækifæri til að heyra þessi verk flutt af stórum og öflugum kór. Sannkölluð söngveisla!

„Hæ-Tröllum“ er einn af föstum liðum í fjölbreyttu starfi Karlakórs Akureyrar-Geysis. Á þessu starfsári stendur kórinn fyrir fernum tónleikum. Í september hélt kórinn tónleika í Miðgarði ásamt Karlakór Kjalnesinga. Jólatónleikar voru haldnir í Akureyrarkirkju á aðventunni, í samstarfi við stúlknakór kirkjunnar. Á „Hæ-Tröllum“ sameinast á Akureyri söngmenn frá Vestur-, Norður- og Austurlandi. Vortónleikar kórins verða svo á sínum stað og að þessu sinni verður lögð áhersla á verk eftir íslenska höfunda.
-BÞ


Viewing all articles
Browse latest Browse all 1718