Quantcast
Channel: akureyrivikublad.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 1718

Um Háskólann á Akureyri

$
0
0
Sveinn Arnarsson

Sveinn Arnarsson

Rektor Háskólans á Akureyri hélt fyrirlestur sl. miðvikudag á Félagsvísindatorgi skólans, þar sem hann fór yfir styrkleika, hlutverk og mikilvægi skólans. Fundurinn var haldinn í hátíðarsal skólans og var hann vel sóttur af nemendum, kennurum og öðru fólki „af götunni“ sem vildi fá innsýn inn í stofnunina.

Rektor hafði þarna 30-40 mínútna glugga til að tala fyrir sjálfstæði Háskólans á Akureyri. Þarna gafst honum gullið tækifæri á að koma hans sjónarmiðum á framfæri, árangri hans sem rektors og þeim framförum sem hann hefur barist fyrir á þeim fimm árum sem hann hefur verið rektor við HA. Stefán Sigurðsson var ráðinn rektor frá 1. júlí 2009 og lætur nú af störfum, fimm árum síðar. Skv. lögum um starf rektors skal auglýsa starfið á fimm ára fresti. Rektor hefur gefið það út að hann sækist ekki eftir endurráðningu.

Rektor talaði um útskrifaða kandidata og búsetu þeirra og taldi það vera helsta markmið Háskólans á Akureyri, að mennta landsbyggðirnar og auka þar menntunarstig. Menntunarstigið á landsbygggðunum væri mun lægra en á höfuðborgarsvæðinu og það ætti að vera markmið Háskólans á Akureyri að tryggja aukið menntunarstig utan höfuðborgarsvæðisins. Benti rektor réttilega á að tveir af hverjum þremur útskrifuðum kandidötum frá HA búa utan höfuðborgarsvæðis þegar námi lýkur.

Fjöldi nemenda við Háskólann á Akureyri hefur hækkað hægt og rólega á síðustu 5 árum. Hins vegar hefur staðarnemum fækkað á skipunartíma rektors á meðan fjarnemum hefur fjölgað. Þessi þróun er ef til vill ekki sú ákjósanlegasta. Nú er svo komið að staðarnemar eru mun færri en fjarnemar við skólann. Ef staðarnemum mun halda áfram að fækka og fjarnemar verða æ stærri hluti af kökunni, gæti orðið erfitt að réttlæta veru háskólastofnunar staðsetta á Akureyri, í þjóðfélagi niðurskurðar, hagræðingar og „þjóðhagslegrar hagkvæmni“.

Það sem rektor kom hins vegar ekki á, í erindi sínu, er rannsóknarvirkni akademískra starfsmanna við Háskólann á Akureyri. Hluti af starfi háskólakennara eru rannóknir, jafn stór hluti og kennsla við stofnunina. Einn besti mælikvarði á rannsóknarvirkni akademískra starfsmanna er gagnagrunnurinn „ISI knowledge“ þar sem allar ritrýndar fræðigreinar er að finna. Gagnagrunnurinn er hentugur til þess að skoða einmitt þetta.

 

Rannsóknarvirkni akademískra kennara við HA

Rannsóknarvirkni akademískra kennara við HA

 

Hér má sjá að rannsóknarvirkni akademískra starfsmanna hefur minnkað mjög mikið síðustu ár. Rannsóknarvirknin hefur ekki verið jafn lítil síðan um miðjan síðasta áratug Nú er svo komið að tæplega 30 ritrýndar fræðigreinar eru að birtast á hverju einasta ári sem merktar eru stofnuninni.

Það er ljóst að Háskólinn á Akureyri verður að gera eitthvað í þessum málum. Það getur ekki talist gott fyrir sjálfstæða háskólastofnun að sinna ekki hlutverki sínu. Einnig hlýtur það að teljast ámælisvert að margir háskólakennarar virðast ekki vera að sinna þeirri vinnu sem til er ætlast af þeim, þ.e. að stunda rannsóknir á sínu fræðasviði, því réttilega fá þau tæplega helming launa sinna vegna rannsóknarstarfa.

Á einhverjum tímapunkti mun Háskólinn á Akureyri þurfa að huga að þessum efnum. Ef skólinn ætlar sér ákveðinn sess í íslensku menntalífi, ætlar sér að vera áfram sjálfstæð stofnun er einsýnt að nýr rektor þarf að taka til í þessum efnum við HA.

Stefán B. Sigurðsson lætur nú af störfum sem rektor Háskólans á Akureyri í sumar. Á þessu félagsvísindatorgi, sem var vel sótt, hafði hann gullið tækifæri til þess að færa góð og sterk rök fyrir veru háskólans á Akureyri og sjálfstæði skólans. Þau rök eru svo sannarlega til. En að mínu mati mistókst honum það verkefni, ef það hefur verið hans markmið fyrir þetta félagsvísindatorg.

Sveinn Arnarsson

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 1718