Á morgun miðvikudag verða síðustu miðvikudagstónleikar Backpackers á þessu ári, þegar Karl Henry heldur tónleika sem verða tileinkaðir jólunum. Tónleikarnir hefjast klukkan 20:30 og er frítt inn.
Laugardaginn 21. desember kl. 12:00-22:00 verður haldinn Vínylplötumarkaður á Backpackers. Um er að ræða nýjar íslenskar útgáfur á kostakjörum sem komið hafa út síðustu misseri. DJ Arnar Ari þeytir vínylplötum fram yfir miðnætti.
Laugardagskvöldið 27. desember spila hljómsveitirnar Sjálfsprottinn Spévísi og PerversJón. Tónleikarnir hefjast klukkan 21:30 og er frítt inn.