Eru einkenni sannrar ástar þau sömu í dag og um miðbik síðustu aldar? Hafa þau breyst? Eða hefur skilgreining okkar á sannri ást breyst í gegnum tíðina? Hvað hefur breyst?
Einleikurinn, Elska, er unninn upp úr ástarsögum Þingeyinga. Í verkinu eru sannar ástarsögur okkar tíma dregnar fram í dagsljósið. Þeim er miðlað í leikverki sem flutt verður í desember í sveitarfélögunum í Þingeyjarsýslum.
Verkið byggir á viðtölum við pör og einstaklinga, á aldrinum 24-78 sem tekin voru upp síðla sumars og haustið 2013. Jenný Lára sem ólst upp í Þingeyjarsýslu hefur unnið handritið upp úr þeim upptökum. Leikurinn er einnig í höndum Jennýjar Láru, en í persónusköpun styðst hún einnig við upptökurnar.
Sýningar hefjjast 6. des. Og verður riðið á vaðið í Safnahúsinu, Húsavík. Þar næst Sólvangi, Tjörnesi, Gamla skólanum Grenivík, Skjólbrekku, Mývatnssveit, Þórsveri, Þórshöfn og leikferðalaginu lýkur 14. des. Á Breiðamýri, Þingeyjarsveit.
-BÞ