Quantcast
Channel: akureyrivikublad.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 1718

Jassað í Akureyrarkirkju

$
0
0
Skúli Sverrisson og Óskar Guðjónsson

Skúli Sverrisson og Óskar Guðjónsson

Óskar Guðjónsson saxófónleikari og Skúli Sverrisson bassaleikari halda tónleika í Akureyrarkirkju fimmtudaginn 26. september kl. 20.

Skúli og Óskar hafa starfað saman i 15 ár. Þeir hafa gefið út tvær plötur; Eftir þögn og The box tree sem báðar unnu til íslensku tónlistaverðlaunanna sem plata ársins í flokki jasstónlistar.

Skúli hefur að mestu leiti starfað í Bandaríkjunum með mörgum þekktum listamönnun eins og Allan Holdsworth, Laurie Anderson, David Sylvian og Blonde Redhead.

Óskar er einn af fremstu jasstónlistamönnum landsins og tónlist hans hefur vakið athygli um víðan heim. Hann hefur leikið med fjölda hljómsveita og má þar helst nefna ADHD og Mezzoforte.

Tónlist þeirra Skúla og Óskars er lagræn og hljómfögur þar sem einstök nálgun hljóðfæraleiks þeirra nýtur sín sem allra best.

Tónleikarnir eru haldnir í samstarfi við Listvinafélag Akureyrarkirkju og aðgangseyrir er 1.500 kr.

-fréttatilkynning


Viewing all articles
Browse latest Browse all 1718