Quantcast
Channel: akureyrivikublad.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 1718

Gæran haldin í fjórða skiptið

$
0
0
Eivör spilaði á Gærunni 2012

Eivör spilaði á Gærunni 2012

Tónlistarhátíðin Gæran verður haldin fjórða árið í röð í húsakynnum Loðskinns á Sauðárkróki, dagana 15. - 17. ágúst. „Gæran er lítil hátíð sem leggur áherslu á að bjóða upp á vandaða og fjölbreytta tónlist, ný og upprennandi bönd í bland við reyndari tónlistarmenn,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum hátíðarinnar.

„Undanfarin ár hefur mikill fjöldi tónlistarfólks spilað fyrir gesti Gærunnar. Í fyrra voru 56 hljómsveitir sem sóttu um og af þeim voru 20 valdar til að stíga á stokk. Í ár sóttu 62 hljómsveitir um og af þeim hafa 22 verið valdar til að spila fyrir gesti Gærunnar í ágúst.“

Hljómsveitarlistinn í ár var tilkynntur á bæjarhátíðinni Lummudögum sem fram fóru á Sauðárkróki í lok júní. Hljómsveitirnar eru í stafrófsröð:
Alchemia
Baggabandið
Bellstop
Blind Bargain
Contalgen Funeral
Dusty Miller
Funk That Shit
Greifarnir
Hymnalaya
Jónas Sig
Kontinuum
Sometime
Stafrænn Hákon
Steinsmiðjan
The Royal Slaves
The Vintage Caravan
The Wicked Strangers
Tilbury
Úlfur Úlfur
Ultra-­Mega Technobandið Stefán
Valdimar
XXXRottweiler hundar.

Dagskrá hátíðarinnar teygir sig yfir þrjá daga. Sólóistakvöld er haldið á fimmtudeginum á skemmtistaðnum Mælifelli og tónleikarnir á föstudeginum og laugardeginum eru á aðalstæði hátíðarinnar.

Aldurstakmark er 18 ár en yngri tónlistarunnendur eru velkomnir í fylgd með foreldri/forráðamanni, 12 ára og yngri fá frítt inn. Miðasala er hafin á midi.is og kostar miðinn á hátíðina 6.000.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 1718