Flugdagur Flugsafns Íslands var haldinn á Akureyrarflugvelli á laugardaginn og þar heiðraði Flugakademía Keilis Arngrím B. Jóhannsson flugstjóra og stofnanda Air Atlanta með því að nefna eina af flugvélum skólans eftir honum. „Þetta er liður í því að heiðra frumkvöðla í íslenskri flugsögu, en áður hefur Flugakademían nefnt flugvél eftir Alfreð Elíassyni stofnanda Loftleiða,“ segir Arnbjörn Ólafsson, forstöðumaður markaðsmála hjá Keili.
↧