Quantcast
Channel: akureyrivikublad.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 1718

Skíðaganga á 17. júní

$
0
0

downloadEftir langan, skemmtilegan og snjóríkan skíðavetur í Hlíðarfjalli ætlar Skíðafélag Akureyrar að halda „skíðagöngumót“ á 17. júní. „Þetta er engin keppni, heldur ætlar fólk að hittast og kveðja veturinn,“ segir á vefsíðu Skíðafélags Akureyrar.

Lögð verður 7-8 km göngubraut frá skíðagönguhúsinu, upp á Stórhæð og upp í Hrafnsstaðaskál. Lagt verður af stað kl. 11.00 frá skíðagönguhúsinu í Hlíðarfjalli. Það er líka alls staðar hægt að stytta sér leið í hringnum fyrir þá sem vilja styttri leið.

„Þetta er frábært tækifæri til að taka þátt í skíðagöngu í Hlíðarfjalli 17. júní. Hver veit hvenær það verður hægt næst? Tilvalið að byrja þjóðhátíðardaginn í Hlíðarfjalli og skella sér svo í önnur hátíðarhöld í bænum eftir hádegi. Heitt á könnunni í skíðagönguhúsinu“.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 1718