Maður var fluttur á Sjúkrahúsið á Akureyri eftir að hafa fundist meðvitundarlaus á botni einnar af laugum Sundlaugar Akureyrar í morgun. Maðurinn liggur nú á gjörgæsludeild sjúkrahússins og er líðan sögð vera eftir atvikum. Ekki er vitað hvernig atvikið bar að eða hversu lengi maðurinn lá á botni sundlaugarinnar. Frá þessu greinir Vikudagur á vef sínum í dag.
Ungmenni á sundæfingu tóku eftir manninum á botni laugarinnar og drógu hann upp á sundlaugarbakkann.
- EMI