Quantcast
Channel: akureyrivikublad.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 1718

Karlar og stúlkur saman á jólatónleikum

$
0
0
Jólatónleikar Karlakórs Akureyrar verða í Akureyrarkirkju

Jólatónleikarnir verða í Akureyrarkirkju

Hátíð í bæ!
Jólatónleikar í Akureyrarkirkju 12. desember.

Karlakór Akureyrar-Geysir og Stúlknakór Akureyrarkirkju taka höndum saman á hátíðlegum og fallegum jólatónleikum í Akureyrarkirkju á miðri aðventunni. Flutt verða jólalög eftir fjölda innlendra og erlendra meistara, meðal annars eftir tónskáldið Birgi Helgason.

Karlakór Akureyrar-Geysir og Stúlknakór Akureyrarkirkju hafa ekki starfað saman fyrr, en kórarnir sameinast nú í jólasöngvum víðsvegar að úr heiminum. Stjórnendur kóranna eru þau Hjörleifur Örn Jónsson og Sigrún Magna Þórsteinsdóttir.

Jólin eru hátíð ljóss og friðar og það mun einkenna þessa tónleika. Gamaldags og lágstemmdir tónleikar, lagavalið er klassískt, jólasöngvar sem allir þekkja og fylgja okkur í jólamánuðinum.

Tónleikarnir verða fimmtudaginn 12. desember og hefjast kl. 20:00. Aðgangseyrir er 2.900 krónur. Forsala er í versluninni Kauptúninu, Glerárgötu 34.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 1718