Þakplötur losnuðu nú fyrir stuttu á húsi við Gránufélagsgötu þar sem framkvæmdir höfðu staðið yfir. Björgunarmenn úr björgunarsveitinni Súlum voru kallaðir á staðinn eru nú búnir að fergja þakið.
Lögreglan á Akureyri segir þetta eina útkallið til þessa vegna hvassviðrisins sem nú gengur yfir en björgunarsveitin sé í viðbragðsstöðu ef á þurfi að halda.